Brow lamination
Augabrúna lyfting sem endist í 6-8 vikur, ásamt næringu á augabrúnasvæði og litun á brúnir með plokkun eða vaxi. Tilvalin leið til þess að skerpa vel á brúnum og fá aukna fyllingu. Hentar einnig vel fyrir þær sem eru með fá hár og vilja þykkara útlit. Innifalið í meðferð er litun á augabrúnir en hægt er að bæta við litun á augnhár ef þess er óskað.
Lash lift
Augnháralyfting/permanent sem gefur augnhárunum fallega sveigju sem endist í allt að 6-8 vikur. Meðferðin inniheldur einnig næringu sem styrkir augnhárin með vítamínum og amínósýrum. Innifalið í meðferð er litun á augnhár en hægt er að bæta við litun á augabrúnir ef þess er óskað.
Eftir meðferðir skal forðast:
- Vatn, hita og gufu í 24 klst.
- Ekki nota maskara né efni í augabrúnir í 24 klst.
- Forðast að nudda augu eða augabrúnir í 24 klst.
