Facial Treatments

ACADEMIE Collagen Meðferð (75 mínútur)
Endurnærandi meðferð sem gefur orku og líf í húðina. Húðin er yfirborðshreinsuð, djúphreinsuð og þar á eftir sett virk ampúla á andlit og háls. Hápunktur meðferðarinnar er kollagenmaski sem djúpnærir húðina, nudd og sérvöld krem.


ACADEMIE Rakameðferð (60 mínútur)
Veitir húðinni samstundis djúpan raka og ferskleika. Virk innihaldsefni komast djúpt niður í húðina og geta þannig gefið henni langvarandi raka. Húðin verður rakameiri, ferskari og ljómandi. Húðin er hreinsuð, gefið nudd og nærandi maski.


ACADEMIE Rósroðameðferð (60 mínútur)
Róandi og nærandi meðferð sem minnkar ásýnd roða og viðkvæmni í húðinni. Áferð húðar verður bjartari og jafnari. Meðferðin inniheldur hreinsun, nudd og virk efni sem eru látin liggja á húðinni.
DERMACTE C-vitamin meðferð (60 mínútur)
Meðferð sem vinnur á litabreytingum í húðinni. Húðin verður bjartari og með jafnari áferð. Meðferðin er rakagefandi og vinnur á öldrunareinkennum. Húðin er hreinsuð, nudduð með C vitamini, maski sem birtir húðina og á meðan eru höfuð nuddað.


DERMACTE Moisturizing meðferð (75 mínútur)
Einstaklega rakagefandi og andoxunar rik meðferð. Húðin verður rakameiri og vernduð gegn utanaðkomandi áhrifum. Húðin er djúphreinsuð, hlaðin með virkum rakagefandi serum sem eru nudduð inn í húðina, í lok meðferðar er maski.


ACADEMIE Pure Hreinsimeðferð (75 mínútur)
Hreinsandi og mattandi meðferð sem dregur saman húðholur og sléttir yfirborð húðar. Meðferðin dregur úr bólgum og hjálpar til við minnkum á olíuframleiðslu. Húðin er djúphreinsuð, gufa, húðhreinsun, nudd og maski.


ACADEMIE Radiance/Súrefnismeðferð (60 mínútur)
Súrefnismeðferð sem endurnýjar náttúrulegan ljóma húðarinnar. Meðferðin fjarlægir óhreinindi, tekur burt dauðar húðfrumur og vinnur gegn ójafnvægi. Húðin er djúphreinsuð, nudduð með virkum efnum og i lokin er maski.


ACADEMIE Detox meőerő (30/60 mínútur)
Meðferðin er djúphreinsandi, þriggja stiga meðferð sem endurheimtir ljóma húðarinnar. Unnið er með örvandi nuddtækni. Meðferðin býður bæði upp á 30 mínútna meðferð og 60 mínútur en þá er bætt nuddi við meðferðina.

Hentar öllum húðgerðum, nema þeim allra viðkvæmustu.


ACACEMIE Pro-Age (75mínútur)
Meðferð sem miðar að því að þétta húðina, veita henni fyllra yfirbragð og grynnka á finum línum. Meðferðin gefur raka, ljóma og minnkar þreytumerki. Húðin er djúphreinsuð með örvandi hreyfingum, sérstakur maski borinn á og nudd.


ACADEMIE Augnmeðferð (30 mínútur/60 mínútur)
Augnmeðferð sem vinnur á þrota, finum og djúpum línum og gefur raka. Einstaklega friskandi meðferð sem hægt er að fá eina og sér eða bæta við aðra meðferð, t.d litun og plokkun.


Ávaxtasýrumeðferð (30/60 mínútur)
Sýrumeðferð er góð leið til þess að styrkja varnir húðar, jafna húðlit, auka raka húðar, minnka opnar húðholur og slétta húð. Sýrumeðferð er einnig góður kostur fyrir alla sem vilja sporna eða vinna gegn öldrun húðar. Sýrumeðferð inniheldur nudd og maska og endar meðferðir á sérvöldum kremum. Snyrtifræðingur metur að hverju sinni hverskonar sýra hentar þinni húðgerð og hægt er að setja upp. meðferðaráætlun í framhaldi til að tryggja sem mestan árangur.


Húðslípun (60 mínútur)
Meðferðin fjarlægir dauðar húðfrumur og örvar vöxt nýrra frumna. Húðslípun bætir áferð húðar og hentar þvi vel fyrir óhreina og grófa húð til að slétta yfirborð hennar. Húðslipun vinnur einnig å finum línum og hrukkum, örum ií húð, exemhúð og bólum og því er meðferðin hentug fyrir allan aldur. Húðin er yfirborðshreinsuð, djúphreinsuð með kornakremi, þar á eftir er húðin slipuð, róandi ampúla og róandi maski settur á húð. Meðferðin endar á sérvöldum kremum fyrir húðgerð.

Andlitsbað – Nudd og Maski (60 mínútur)
60 mínútna dekur, þar sem húðin er yfirborðshreinsuð og djúphreinsuð með kornakremi. Þar á eftir er 20 mínútna andlits og herðanudd ásamt höfuðnuddi. Í framhaldi er sérvaldur maski á andlit og háls og endar meðferðin á sérvöldum kremum fyrir húðgerð. Hægt að bæta við litun og plokkun á augabrúnir.


Húðhreinsun með virkri ampúlu (45-60 mínútur)
Húðhreinsun hentar vel fyrir þá húð sem þarfnast hreinsunar. Hüðin er yfirborðshreinsuð og djúphreinsuð áður en gufa er notuð til þess að hita húðina vel fyrir kreistun. Eftir kreistun er hreinsandi ampúlu strokið íléttum hreyfingum á andlit og háls. Því næst er settur maski i 10-15 mínútur og sérvalin krem fyrir húðgerð.
Virkar andlitsmeðferðir með raftækjum


Ultrasound – hljóðbylgjumeðferð (60/90 mínútur)
Ultrasound hljóðbylgjumeðferð er húðþéttandi andlitsmeðferð þar sem notast er við hljóðbylgjur sem eyrað nemur ekki til þess að þétta, lyfta og styrkja húðina. Þessar hljóðbylgjur berast niður í neðstu húðlögin og með því náum við að örva endurnýjun og kollagen framleiðslu húðarinnar.


(þessari andlitsmeðferð notumst við einnig við mjög virk serum sem eru sérstaklega hönnuð til að þétta húðina og þrýstum við því niður með hljóðbylgjunum. Ásamt því að þétta húðina að þá eru hljóðbylgjurnar einnig að vinna á þrota og bólgum í húð en þær örva sogæðarnar og losa um sogæðavökva sem hefur safnast fyrir í húðinni og valdið bólgum og þrota.
Meðferðin inniheldur lúxus gúmmímaska sem er settur á andlit og háls og nudd innifalið 190 mínútna meðferð.


LED meðferð (60/90 mínútur)
Snúðu aldursbreytingunum við með Dermisonic II LED. Tækið samanstendur af rauðu, bláu grænu LED ljósi og er meðferðin sársaukalaus. Hver ljós hefur sína eiginleika og fer það eftir húðgerð eða markmiði hvaða ljós er notað í hver skipti. LED ljósameðferð er notuð til að meðhöndla hina ýmsu húðsjúkdóma ásamt því að stuðla að heilbrigði húðar. Meðferðin dregur úr hrukkum og línum, eykur kollagen og elastinframleiðslu, örvar blóðstreymi og jafnar húðlit. Meðferðin hentar öllum húðgerðum, einnig acne og rósroðahúð. Meðferðin inniheldur lúxus gúmmimaska sem er settur á andlit og háls og nudd innifalið í 90 mínútna meðferð.


PULSE-Lifting treatment (60/90 mínútur)
Andlitsmeðferð sem sameinar EMS, LED og örnudd á andlit og háls. Stuðlar að lyftingu, stinningu og eykur kollagen og elastín í húð ásamt því að veita ljóma í húð. Meðferðin byggist á vöðvaþéttingu og andlitslyftingu sem eykur stinnleika á andliti og hálsi sem leiðir til sléttari og áferðarfallegri húð. Vöðvar eru styrktir og húðin virðist stinnari og unglegri. Meðferðin inniheldur lúxus gúmmímaska sem er settur á andlit og háls og nudd innifalið i 90 mínútna meðferð.

Popular Post

  • Pampering Package

    Relaxing treatments combining skincare, massages, and indulgent care for complete…

  • Facial Treatments

    Customized skincare treatments to cleanse, nourish, and rejuvenate your skin…

  • Waxing Treatments

    Professional hair removal for smooth, long-lasting results on legs, arms,…

  • Eye Treatments

    Specialized care for the delicate eye area, including soothing masks,…

  • Connect With Us

    Let’s create your perfect spa and massage experience.

    Scroll to Top