Waxing Treatments

Vax meðferðir
Vaxmeðferð er tilvalin aðferð til þess að fjarlægja óæskilegan hárvöxt. Snyrtistofan Rúnir býður upp á allskyns vaxmeðferðir, þar á meðal brasiliskt vax fyrir konur. Með vaxi eru hárin tekin upp með rót svo ný hár vaxa ekki fyrr en eftir 4-6 vikur en fer það þó eftir vaxtarhrings hvers hárs.
Við leggjum mikla áherslu á að gera meðferðina eins notalega og hægt er, i notalegu umhverfi. Að lokinni meðferð er róandi olla sett á meðferðasvæðið og sprey fyrir inngróin hár ef þess þarf.
Við framkvæmum ekki vax á andlitssvæðið ef notuð eru húðþynnandi lyf.


Nokkrir hlutir sem vert er að athuga eftir vaxmeðferðir
Hárin þurfa að lágmarki að vera um 2-4 mm að lengd (3-4 vikur eftir rakstur)
Forðast sturtu, sund, saunu, gufu og likamsrækt 24klst eftir meðferð
Forðast ljósabekki eða sölböð 24 klst eftir meðferð
Forðast að bera krem, oliur á meðferðasvæði 24kist eftir meðferð
Gott að klæðast viðum og þæginlegum fötum eftir meðferð
Mikilvægt er að huga að okkar viðkvæmasta svæði og erum við með nokkrar vörur til sölu hjá okkur.


Pinkini sápa
Mild sápa fyrir bikinisvæðið, hentar til daglegrar notkunar, jafnar pH gildi húðar og ver náttúrulegt sýrustig hennar sem skiptir griðalegu miklu máli á þessu svæði líkamans. Inniheldur m.a. lactic acid(lýsandi), aloe vera og allantóin sem sefar og róar.


Pinkini lotion
Létt krem sem róar, mýkir og ver húðina eftir vax og hentar einnig vel til notkunar heima sem rakakrem fyrir bikinisvæðið. Inniheldur kamillu, allantoin og tazman ber sem allt hafa róandi og sefandi áhrif á húð. Vörurnar innihalda einnig bisabolol sem hefur þau áhrif að hreinsa burtu litarefni sem önnur efni hafa valdið í húð.


Lycon X-it Sprey
Sprey fyrir likama og andlit gegn inngrónum hárum og mildar rauða bletti. Inniheldur salílsýru sem flýtir fyrir endurnýjun húðar og vinnur því vel á inngrónum hárum. Spreyjið má nota eftir vax, rakstur og háreyðingarkrem. Við mælum með því að nota spreyjið 1-2 á dag. Þurrkist ekki af. Gott er að bera Pinkini Lotion 10 min síðar.


Hvað eru inngróin hár?
-Inngróin hár getur verið mjög leiðinlegt og þrátlátt vandamál. Það virðist vera að sumir eru gjarnari að fá inngróin hár en aðrir fá siður. Þegar inngróið hár er til staðar þá kemst hárið ekki í gegnum efsta lagið vegna dauðra húðfrumna, og vex því áfram undir húðlagi. Þetta getur bæði valdið kláða, óþægindum, bólgum og stundum kýlum. En hvað er til ráða?
Raki, og nóg af raka. Gott er að bera rakakrem á svæðið, ef um bikinisvæðið er að ræða þá skal nota krem sem er áætlað fyrir slikt svæði, t.d Pinkini Lotion sem fæst hjá okkur. Ef húðin fær nægilega mikinn raka og mýkt þá á hárið auðveldara með að brjóstast í gegn og upp á yfirborð þar sem það heldur áfram að vaxa.
-Gott er að skrúbba húðina reglulega með kornakremi eða skrúbbhanska. Hér er afar mikilvægt að bera rakakrem á eftir til að næra húðina. Þegar við skrúbbum húðuna þá fjarlægjum við dauðar húðfrumur á yfirborði húðar og húðendurnýjun verður því meiri sem hjálpar hárunum að brjótast i gegn á yfirborð húðar.

Popular Post

  • Pampering Package

    Relaxing treatments combining skincare, massages, and indulgent care for complete…

  • Facial Treatments

    Customized skincare treatments to cleanse, nourish, and rejuvenate your skin…

  • Waxing Treatments

    Professional hair removal for smooth, long-lasting results on legs, arms,…

  • Eye Treatments

    Specialized care for the delicate eye area, including soothing masks,…

  • Connect With Us

    Let’s create your perfect spa and massage experience.

    Scroll to Top