Litun og plokkun/vax
Litun á augabrúnir og augnhár er góð leið til að skerpa á augnsvæði og augnsvip.
Liturinn endist að meðaltali 4-6 vikur en fer það þó eftir hverjum og einum.
Mótun og litun er í samráði við viðskiptavin og hægt er að velja um plokkun eða vax. Að meðferð lokinni er augnkremi nuddað á svæðið. Fullkomin 30 mínútna meðferð í rólegu umhverfi.
Brow Lamination
Mótun augabrúna sem endist í 4-6 vikur er góður kostur fyrir alla sem vilja ennþá betur mótaðar brúnir. Meðferðin er mjög vinsæl fyrir brúnir sem eru grófar þar sem hægt er að stjórna mótun vel með efnunum sem notuð eru. Við veljum lag á augabrúnir í samráði við viðskiptavin áður en meðferðin hefst. Við setjum tvennskonar næringu á brúnirnar sem innihalda keratín, amínósýrur, kollagen og steinefni til að styrkja hárin. Augabrúnir eru svo litaðar og augnhár ef þess er óskað.
Við notum lit sem liggja má á brúnunum i fullan tíma, þannig færð þú fullkomlega djúpan og fallegan lit sem endist í 4-6 vikur. Meðferðin tekur 60 mínútur.
Til að tryggja hámarksárangur:
Forðastu að bleyta augabrúnasvæðið í sólarhring eftir meðferð
Ekki bera krem, olíur, farða eða serum á svæðið sólarhring eftir meðferð
Ekki nota kornakrem á svæðið þremur dögum fyrir og eftir meðferð
Forðastu að nota Retinól, AHA sýrur, BHA sýrur, sterakrem og húðþynnandi krem á svæðið tveimur sólarhringum eftir meðferð
Forðastu sól, ljósabekki, saunu og gufu í tvo sólarhringa eftir meðferð
Eðlilegt er að finna fyrir þurrk fyrstu dagana eftir meðferð
Ráðleggjum að eiga Elleeplex Aftercare bæringu til að styrkja og næra brúnir heima eftir meðferð
Lash Lift
Augnháralyfting/permanent sem gefur augnhárunum fallega sveigju sem endist í allt að 4-6 vikur. Með fallegri sveigju virðast augnhárin oft lengri en áður. Einnig er hægt að rétta augnhár tímabundið við, sem skarast í allar áttir. Meðferðin inniheldur tvennskonar næringu sem styrkir augnhárin. Í lok meðferðar eru augnhárin litun og augabrúnir ef þess er óskað. Meðferðin tekur 60-75 mínútur.
Við mælum með að vera án maskara þegar komið er í meðferðina.
Til að tryggja hámarksárangur:
Ekki bleyta augnhárasvæðið í sólarhring eftir meðferð
Ekki nota krem, hreinsi, farða eða serum sólarhring eftir meðferð
Ekki nota maskara (nema Elleebana maskara) sólarhring eftir meðferð
Forðast gufu og saunu sólarhring eftir meðferð
Ráðleggjum að eiga Elleeplex Aftercare næringu til að styrkja og næra augnhár
heima
Við framkvæmum ekki Lash lift ef augnsýking er til staðar, eins þarf allur gróandi að vera ef einhversskonar inngrip hefur verið á augnsvæðinu.